Tíðindi frá Danmörku
18.03.2009 07:43:00 / hannakar

5 ára skvísa.

 Já ég veit ég veit....frekar ódugleg að blogga....en ég fer að virkja karlinn í blogginu, þar sem hann hefur nú ekkert annað að gera :lol::lol::lol:;)

En ég ákvað nú bara að skrifa smá hér núna, í tilefni þess að Hildur Heba átti 5 ára afmæli í gær.. úfff já tíminn líður frekar hratt.  Hún var ekki nema 17 mánaða þegar við fluttum hingað til Danmerkur, eða eins og Eva er núna, ótrúlegt.....

Við fengum átta börn og tvær konur frá deildinni hennar Hildar á leikskólanum í heimsókn í gær.. Það var svaka mikið fjör, vel borðað, leikið, ruslað til :haha: og farið svo út í blíðunni á trampólín....og allt gekk bara mjög vel.

Svo var farið út að borða seinnipartinn á veitingastað sem heitir Bones, og það var eins og alltaf bara mjög fínt.;)

Við Hemmi fórum reyndar líka í gær í foreldraviðtal hjá kennurunum hennar Hönnu, og jú jú auðvitað er stelpan að standa sig eins og hetja, mjög dugleg í dönskunni, kennararnir heyra engan mun á henni og dönsku krökkunum.  Stærðfræðikennarinn hennar hann Mads sagði að hún væri góð í stærðfræðinni, og stundum velti hann fyrir sér hvort hann þyrfti að finna erfiðari dæmi fyrir hana, þar sem hún væri frekar fljót að leysa dæmin sem hún hefði...Kennararnir gátu ekki sagt neitt neikvætt um hana, bara að hún mætti tala aðeins minna :d:$ og tala lægra....aha já hún er frekar mikil hávaðabjalla.

Nú Eva okkar er bara yndisleg, er hæstánægð á vöggustofunni.  Hún ætlar að líkjast systrum sínum töluvert, því hún talar mjög mikið...Hún er malandi á dönsku og íslensku og er nú þegar farin að blanda svolítið mikið saman orðunum eða setningunum.

Jæja læt þetta gott heita í bili, allt annars gott að frétta af okkur, ég í vinnunni alltaf og Hemmi leitandi sér að vinnu.....

Hilsen, familien í Horsens.

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 10:15:30 / hannakar

Nýr kafli...

Sæl öll saman. Eins og stendur í yfirskriftinni hefst nú nýr kafli hér á Engblommevejinum. Náminu hér í Horsens lauk í gær með velheppnuðu munnlegu prófi sem gaf 10 í einkunn. Aðeins er ein einkunn hærri og er Byggingarfræðingurinn bara mjög sáttur við sitt.  Fyrir nokkrum dögum fékk svo útúr ritgerðinni sem þarf einnig að skila með og þar var einkunin 7.
Hin eiginlega útskrift er svo þann 23. Jan og eru ma & pa að koma í tilefni þess á laugardaginn og verða hjá okkur í 10 daga.
Ég er farinn að skoða aðeins atvinnumarkaðinn hér, sem er afar dapur og miklar uppsagnir í gangi í byggingargeiranum og víðar. En auðvitað má ekki leggja árar í bát, þessu lauk nú bara í gær. Það er bara skrýtið að skólagöngunnni er lokið sem hófst þegar við fluttum út fyrir 3 ½ ári síðan. Þetta er eins og hafi verið í fyrra... ótrúlegt. Talandi um það, var Hildur jafn gömul Evu núna þegar við fluttum !!

Við erum svo búin að hafa það notalegt síðan að bloggað var síðast, en ekki man ég hvenær það var. Ekki ætla ég að fara telja þetta allt upp, en jólin komu hér eins og þar. Tengdó var hérna hjá okkur, þau hjálpaðu mikið til eins og alltaf, það var sérstaklega kærkomið meðan ég var að leggaja síðustu hönd á ritgerðina og verkefnið.

Jæja, svo að dyggir lesendur bloggsins fái ekki stærra sjokk að sé búið að henda inn línum, ætla ég ekki að hafa þetta lengra í dag.

Kveðja til allra.
HH & hinar svísurnar. />


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 08:26:44 / hannakar

Yndislegur morgunn.

Já látið ekki líða yfir ykkur, smá blogg hér á ferð.  En stutt verður það í þetta sinn,
En dagurinn í dag byrjaði svona yndislega, allar stelpurnar mínar og Hemmi minn, sungu svona fallega fyrir mig afmælissönginn í rúminu, og færðu mér svo ofsalega fallegt spariúr.  Takk aftur elskurnar mínar.:d
Næst á dagskrá er svo jólaföndur í skólanum hennar Hönnu, og svo út að borða á Bones seinnipartinn í dag..
Svo er aldrei að vita nema maður lumi á smá kaffisopa í dag ef einhver kíkir við, hint hint Elísabet....

Hilsen í bili,
Freyja hin síunga.

» 12 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 11:21:00 / hannakar

Fréttir - engar fréttir

Jæja, eigum við nokkuð að minnast á bankamálin eða.. nei.  Jú annars, þetta reddast allt.

Það jákvæða í þessu að um næstu mánaðarmót detta inn ekta danskir peningar inn á reikninginn frá gjörgæslunni ! 

En sæl öll, þau sem reka inn nefið á þessa bloggsíðu. Hjá okkur er bara allt rólegt, má segja. Það er haustfrí hjá okkur hér, alltaf í viku 42. Frí er hjá Hönnu í skólanum en hún hefur farið í skólagæsluna nokkra daga og er núna hjá Bertu sinni, fór í bíó í gær og svaf svo þar (vonandi gat hún sofið fyrir hávaða !) Eva og Hildur hafa verið á sínum leikskólum þessa vikuna en eru í fríi í dag því við erum að undirbúa fyrstu næturvaktina hjá Freyju. Henni líkar bara svona gríðarlega vel, þótt að erfitt hafi verið að byrja á erfiðari deild og þar sem álagið hefur verið víst meira en elstu menn muna.

            Tók mér líka frí í dag, en hef verið að sinna mínum málum undanfarið. Gengur bara þrusu vel, er bæði með lokaverkefni í gangi og ritgerð. Henni á að skila fyrir jól en prófið verður sennilega í viku 3 og útskrift þann 23. jan 2009. Eftir útskrift stefnir maður svo á vinnumarkaðinn og fer að skoða þetta á næstu vikum. Það hefur líka dregið saman hér, þannig að má svosum reikna með að útlitið sé ekki uppá það besta, allavega að fá vinnu sem “bygningskonstruktør”

 

Svo er nú bara ökutímar í vændum hjá húsbóndanum. Ef ykkur misminnir ekki, gerðist smá óhapp þann 20. júlí á síðasta ári. Þetta er nú komið í gegnum hið hraðvirka kerfi Danans. Þarf að fara í ”kontrolleret køreprøve” sem þýðir að ég þarf að fara í ökutíma, taka ökupróf og að standast krossapróf !  Þetta er nú bara rosalegt, bæði að tíminn sem fer í þetta og svo þarf nú að millifæra á þessu fína genginu !!

 

En það bíður okkar nýbökuð gulrótarkaka í suðurbænum og því verður þetta ekki lengra af minni hálfu.

 

Bestu kv.

HH, FS, HKH, HHH & EHH


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 15:46:06 / hannakar

KREPPA......

Já sæll, hvers konar ástand er á fróninu góða??????
Allavega er það nú svo núna að Danske Bank, bankinn okkar hefur lokað á allar millifærslur milli Íslands og Danmerkur...úffff semsagt getum ekki fengið pening hingað út.:evil:   En þó er  nú smá ljós í myrkrinu, ég byrjuð að vinna og því von á dönskum launum næstu mánaðarmót, dejligt;):d:d:d:d

Annars allt gott héðan, ég reyndar búin að vera lasin, já einmitt rosa heppilegt þar sem maður er nýbyrjaður að vinna..Já og vinnan, gengur rosa vel og allt lofar góðu..
Blogga meira fljótlega, ætla að fara sinna matargerðinni, ....
Það er hreint og beint ekki hægt að skrifa meira, því þá fer maður bara að blóta þessum hálfvitum þarna heima, þessum fíflum eins og Davíð Oddssyni, sem btw. hefur alltaf verið MJÖG lágt skrifaður hjá mér ;););)
Já er hætt í bili hehehehee.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 09:39:17 / hannakar

Einar í kotinu....

 

   Já já hvað haldið þið, frúin sest við tölvuna og þykist ætla að fara blogga.  Fékk kannski svona mikla inspiration, þar sem ég er að hlusta á sálina og gospel, alveg hreint yndislegt...

Annars er nú ósköp einmannalegt hér þessa stundina, Hemmi og Hanna flugu til Íslands sl. föstudag og koma ekki heim fyrr en á miðvikudagskvöld.  Jú ástæðan fyrir ferð þeirra er sú að elskulegur Níels afi hans Hemma var bráðkvaddur og á að jarðsetja hann í dag.  Við hér hugsum til ykkar þarna heima...  Ég, Hildur og Eva erum því bara aleinar hér í kotinu.  Okkur hefði svo sannarlega langað að fara heim og fylgja afa til grafar, en aðstæðurnar voru eiginlega ekki þær bestu þar sem Eva er á fullu í aðlögun í vöggustofunni og styttist í að ég byrji að vinna.

 En talandi um vöggustofuna þá gengur bara vel þar, Eva tók reyndar aðeins upp á því í þarsiðustu viku að vera pínu súr og gráta á allar góðu konurnar þarna nema hana Dorte sína, en þetta lagaðist allt saman.  Þó kom nú pínu bakslag þar sem Eva veiktist í síðustu viku, og var því heima á miðv, fim, og föstudag.  En ég fór með hana í morgun og æj æj litla hjartað grét svolítið mikið þegar mamma fór:cry:, en þær hafa allavega ekki hringt enn, svo ég vona að allt gangi vel. 

Hildur Heba er núna á leikskólanum sínum og er sko alsæl þar.  Hún var heima á fimmtudaginn vegna kvefs en vildi svo bara fara í skólann aftur, og leika við vini sína heldur en að hanga heima með mömmu hehehe.  Annars er hún að verða svo stór, farin að fá vinkonur sínar í næturgistingu, og farin að hlaupa ein á milli húsa hér..  Hmmm spurning hvenær Eva byrjar á þessu, en hún kannski hleypur ekki á milli húsa enn, en er þó farin að labba á fullu takk fyrir, og ef hún er að flýta sér þá sest hún frekar á rassinn og skríður þannig á fullu ferðinni:d.

   Hanna Karin brillerar eins og alltaf í skólanum.  Henni gengur rosa vel að lesa bæði á íslensku og dönsku, og skriftin hjá henni er ótrúleg, hún skrifar svo vel krakkinn, það fær hún sennilega frá mér;););).

  Jæja ég ætla að hafa þetta bara stutt í dag, og halda áfram að þvo þvott og þrífa og skrúbba og bóna, og já hlusta á sálina og gospel....dejligt.

Úfff hljómar svo núna lagið okkar Hemma, eða okkar nótt með sálinni,  og frúin finnur því fyrir enn  meiri söknuði...en það er nú stutt í kallinn minn.....:lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 19:02:15 / hannakar

Tapas, Gjörgæsla, Skóli.....

Jæja nú verður sko bara bloggað aftur, en þó sennilega ekki svona langt blogg eins og það síðasta.

Aðalfréttirnar eru nú þær að ég (frúin) er komin með vinnu, ég sendi inn umsókn á gjörgæsludeildina hér á sjúkrahúsinu í Horsens, og svo nokkrum dögum seinna var mér boðið að koma í viðtal.  Ég semsagt fór í viðtal s.l. miðvikudag, þar sem þetta var nú bara hálfgerð yfirheyrsla, hehe, fimm konur sitjandi við borðið og skoða mann frá toppi til táar, nei nei segji nú bara svona.  En þetta viðtal stóð yfir í 50 mínútur, svo var mér boðið að fara með einni af þessum fimm í skoðunarferð um deildina, sem ég að sjálfsögðu þáði.  Ég hélt að ég færi svo bara heim og mundi fá símtal daginn eftir eða svo, en nei nei mér var svo bara vísað inn á biðstofuna, og þær myndu svo kalla mig inn á skrifstofuna aftur.  Vá hvað mér fannst þessar fimm mínútur lengi að líða, en já svo kom ein og bauð mér inn aftur, og þá fékk ég bara að vita það að þær vildu bjóða mér vinnu.  Ég byrja semsagt 1. okt., og er ráðin til 31.okt., á næsta ári.  Byrja í fullri vinnu fyrstu tvo mánuðina, eða 37 tíma á viku, á meðan ég er að komast inn í hlutina, og minnka svo hugsanlega við mig í 33 tíma í desember..  Já þetta viðtal gekk bara svona þrusuvel, og þessar kellur voru bara frekar hissa en ánægðar hvað ég talaði góða dönsku, og ég því að sjálfsögðu í skýjunum...:d:d:d

Þessi vinna kemur gersamlega á besta tíma, þar sem Eva Hrund er að byrja á vöggustofu núna 1.sept.. Ég er einmitt að fara með hana i heimsókn á morgun, þar sem við komum til með að hitta alla á deildinni hennar, sem og að skoða húsnæðið og það allt. 

Af hinum stelpunum er bara allt gott að frétta, Hanna búin með tvær vikur í skólanum sínum, og Hildur alveg alsæl í sínum leikskóla, henni langar þó stundum bara að byrja í skóla eins og stóra systir.

Hemmi byrjaði síðustu önnina sína í skólanum í dag, og nú hefst því bara alvaran fyrir fullt og allt, lokaverkefnið sem er bara einstaklingsverkefni, engin hópavinna.  En þetta leggst bara rosa vel í kallinn, og ég veit að hann verður ekki í neinum vandræðum með þetta.

Hehe, já ef þið hafið ekki fattað að fyrst ég er búin að ráða mig í vinnu n.k. ár, þá erum við ekki á leiðinni heim á frónið.. Þessi vinna hjálpaði okkur bara vel í ákvarðanatökunni varðandi hvað við myndum gera..  Svo er bara spurning, hvað við gerum í húsnæðismálum, hvort við reynum að leigja annað og stærra húsnæði eða kaupum eitt stykki húsnæði...Það kemur í ljós seinna.

Sl. laugardagskvöld fórum við til Vejle, ásamt Gunnhildi, Þresti, Fjólu, Herði og Elísabetu á Tapas stað, og fengum þar rosalega góðan mat, og góða skemmtun, enda frábær hópur hér á ferð sko hehe. En tilefnið var að Þröstur og Gunnhildur voru að bjóða vinnuköllunum sínum út að borða ásamt mökum og þakka þannig fyrir hjálpina í þaksmíðinni. 

Jæja, látum þetta duga í bili, ég ætlaði víst ekki að blogga mikið hehe, ætla að skella mér í sófann til tengdaforeldra minna, og kannski ná í smá ís í leiðinni.  Hljómar vel ekki satt......

Bedste hilsner,

Familien i E8.


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 13:45:37 / hannakar

Nú verða sagðar fréttir.

Hej öll.

Þó að lítið sé að gerast í blogginu er ekki hægt að segja sé lognmolla hér hjá okkur. Það er alltaf í nógu að snúast með 4 stelpur J. Það er búin að vera gríðarlegar rigningar síðustu daga en þar á undan var hitinn nánast að drepa mann og var legið oft bara innandyra.

 

Það sem helst hefur gerst er að þessi Hollands og Þýskalandsferð tókst í alla staði mjög vel. Við byrjuðum á að keyra héðan til Bremen, ca 400 km og gistum þar eina nótt á hosteli. Þaðan var svo ekið daginn eftir til Andijk, sem er lítill bær í norðvestur hluta Hollands. Þar er sumarhúsagarður með flottum stakstæðum tveggja hæða húsum, um 80 stk. (sjá í myndasafni) Við hliðina á honum var svo eldri garður með ca 400 bungalows og er öll þjónusta og slíkt samnýtt. Það var sko nóg um að vera, sundlaug,strönd, leikvellir, tennis, minigolf og allt hitt sem fyrirfinnst í svona görðum.

Við keyrðum svo víða í nágrenninu og heimsóttum gamla og huggulega bæi, einn daginn fórum við til Amsterdam sem er í ca 50 km fjarlægð. Mikið er hægt að skoða í miðborginni þar, en við förum þangað síðar án stelpnanna. Vorum sammála að það væri gaman að koma þarna í “hjónaferð”, og njóta allra kaffihúsanna og mannlífsins betur. Annars var þetta skemmtilegur fjölskyldutími, þar sem Hanna og Hildur sýndu nýjar hliðar, gátu leikið sér allan daginn án þess að vera rífast og nöldra útí hvora aðra... En það svosum breyttist strax eftir heimkomu !!

Frá Andijk var svo keyrt til Hannover þann 25. júlí og gist á litlu þægilegu hóteli í útjaðri borgarinnar. Á leiðinni þangað var gríðarlegur hiti og á sama tíma voru miklar vegaframkvæmdir á E30 hraðbrautinni og voru miklar tafir og langar raðir. Stelpurnar í aftursætinu komu samt skemmtilega á óvart hvað þær voru þolinmóðar í hitanum. Strax um morguninn (um tíuleytið) var svo keyrt ca 150 km leið til Hamborgar og ætluðum við að eyða deginum þar á röltinu og “hygge os lidt” Reiknuðum með að vera þar um hádegisbil. En þetta byrjaði mjög skemmtilega, þar sem slys á E45 hraðbrautinni setti allt úr skorðum, miklar tafir og raðir. Loks þegar við komust áfram, af hrauðbrautinni og inná leiðina inní borgina voru “helv” þýskararnir í mikilli vegavinnu þannig að við vorum að koma til Hamborgar um hálf þrjú. Við eyddum samt góðri stund þarna, borðuðum á ítölskum veitingastað og röltum um borgina sem er mjög falleg. Við hjónin vorum aftur sammála að þarna verðum við að koma við án stelpnanna, margt fleira að skoða og njóta betur.

Um kvöldið keyrðum við svo bara heim til Horsens, með viðkomu á “Grænsen” (landamærunum) til að fylla á sódavatnsbirgðir ofl.

Svo þegar heim var komið var Gerða “litla” og Steini og systir hans hér í íbúðinni og höfðu verið í 2 daga. Þau voru hingað komin til að fara á Iron Maiden tónleika. Þau voru svo hjá okkur í 4 daga eftir að við komum heim.

 

Eins og minnst var á áður hefur sumarið verið rólegt og gott hjá okkur. Hildur Heba er nýbyrjuð aftur á leikskólanum eftir sumarfrí og Hanna Karin byrjar í 1. bekk á mánudaginn næsta. Þar er mikill spenningur á ferðinni, en bekkurinn fær nýjan kennara og nýja stofu.
 Eva Hrund er svo komin með pláss á vöggusstofu, sem er í sama húsnæði og leikskólinn hjá Hildi, og byrjar hún þann 1.sept.    Skólinn hjá mér byrjar svo þann 25. ágúst. Það er svo skrýtið að hugsa til þess að þetta er síðasta önnin í skólanum. Meira segja komin dagsetning á útskriftina, þann 30. janúar 2009. Fyrsta skiptið í náminu er einstaklingsvinna framundan og bæði þarf að skila “afgangsprojekti” og ritgerð. Bara spennandi. Svo er bara að sjá hvað verður með framhaldið eftir það....

 

Það eru miklar pælingar í elstu dömunni okkar þessa dagana. Eitt kvöldið þegar ég fór upp og hélt að allar væru sofnaðar, var ljós hjá henni og var hún vakandi. Hún sagðist ekki geta sofnað, því hún væri að hugsa svo mikið. Allt í góðu með það sagði ég, en þá spurði hún: “pabbi, veit ég núna hver verður kærastinn minn þegar ég verð fullorðin”?:lol:

            Það koma líka gullkorn frá Hebu, um daginn vorum við hjá Þresti og Gunnhildi þar sem ég hef hjálpað honum í að byggja nýtt þak á húsið.  Hildur spyr hvort að hún megi sofa hjá þeim, en Freyja segir að það gangi nú ekki því að það sé leikskóli morguninn eftir. Þá segir hún;” það er nú allt í lagi, þau vita alveg hvar hann er og geta keyrt mig”..... svar við öllu !!;)

            Eva Hrund er aðeins farin að sleppa sér, en sest fljótt niður aftur. En í gær fór hún án hjálpar upp allan stigann og því var hliðið sótt uppá háaloftið og sett upp áðan. Það er ekki þorandi að líta af henni þessa dagana, hún rífur úr þeim skápum sem hún nær í eldhúsinu og skógrindin fær ekki að vera í friði.  Já svo fann ég fyrstu tönnina hjá Evu í Hollandi, þannig að nú státar hún einni tönnslu og notar hana vel...

 

Jæja, nú fer þetta að vera ágætt. Hef ekki skrifað svona mikið á íslensku síðan í sögu 202 í Verkmenntakólanum fyrir margt löngu síðan. Freyja og eldri systurnar eru að baka fyrir morgundaginn, þar sem við höldum smá vinakaffi til heiðurs afmælisbörnum júlímánaðar.

 

Innan skamms, vonandi í kveld hef ég mig í að setja inn myndir!!

 

Bestu kveðjur frá okkur öllum

E8 gengið.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 07:26:16 / hannakar

1 árs skvísa..

Sæl öll.
Hér hefur bloggandinn verið í góðum dvala undanfarið, segjum bara í sumarfríi.

Eins og fyrirsögnin ber með sér, er hún Eva Hrund 1 árs í dag. Vantar rétt klukkustund í að það sé ár síðan að þessi 3ja yndislega dóttir kom í heiminn.

Við erum nýkomin úr 9 daga ferðalagi, vorum viku í Hollandi og svo á tveimur stöðum í Þýskalandi. Frá þessu verður ýtarleg greinargerð birt síðar, ásamt myndum. 
    Helstu fréttirnar eru að fyrsta tönnin er komin hjá Evu og labbar hún meðfram öllu á þvílíka sprettinum.

Bestu kveðjur.
E8 gengið.

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 19:22:46 / hannakar

7 ára skvísa....

:d Já eins og fyrirsögnin vísar í, þá er hún Hanna Karin 7 ára í dag....til hamingju með daginn stóra skvís....það sem tíminn er nú fljótur að líða...
Í tilefni dagsins var farið heim til Harðar og Elísabetu með köku, og slegið upp smá kaffi með þeim, þar sem Berta þeirra á líka afmæli í dag, og er hún 8 ára...  svo fórum við öll saman út að borða á Bones, og ummmm :d góður matur. Svo erum við nú bara þrjú hér heima núna, ég, Hemmi og Eva Hrund, þar sem Hanna og Hildur fengu að gista hjá Bertu og Unu....fjör þar á bæ :haha:

En jæja það styttist óðum í Hollandsförina okkar, förum af stað á fimmtudaginn, og gistum í Bremen í Þýskalandi í eina nótt, og höldum svo áleiðis í sumarhúsið í Hollandi á föstudeginum og verðum þar í viku...

Gestirnir okkar sem hafa verið hér í viku, þau Stefán bróðir Hemma, Björg og Sindri fóru í morgun, og áttum við notalegar stundir með þeim...Takk fyrir samveruna...:þ Held að Hanna sé bara strax farin að sakna Sindra...hehe

En læt þetta duga í bili, bæbs....

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 07:26:31 / hannakar

Allt að gerast....

Já já hér er enn mikil bloggleti, og verður lítið gert í því í bili, en við höfum þó allavega eina rosa frétt handa ykkur.
  En kannski að byrja á því að segja að við mæðgurnar erum löngu komnar frá Íslandi, og þar höfðum við það rosa gott.  Við létum dekra við okkur á allan hátt :haha: en ég segi betur frá Íslandsförinni í næsta bloggi.

Og þá að fréttinni, en við erum búin að selja íbúðina okkar á Akureyri :d og erum við bara sátt með verðið sem við fengum fyrir hana,,þó er lang best að vera laus við hana.

En jæja höfum þetta bara stutt í bili, kem með lengra blogg og meiri fréttir fljótlega, ég lofa;).
Amma Gerða og afi Himmi eru hér hjá okkur núna, en fara því miður til Íslands á sunnudaginn:frown:
 
Bæjó

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 17:21:55 / hannakar

Heimkoma !

Jæja.
Þá er loksins 2 vikur liðnar síðan þær mæðgur fóru til Íslands. Mikið verður ánægjulegt og gott að fá þær heim. Búið er vera mikið um að vera hjá þeim og er vonandi löng ferðasaga á leiðinni á síðuna við tækifæri.

Við Hanna Karin höfum líka haft það reglulega notalegt. Búin að stunda sundlaugar, matarboð og aðra hittinga.
Við förum til Köben í fyrramálið og ætlum að skemmta okkur í tívolí, þangað til að þær lenda á Kastrup, með ömmu Gerðu og afa Himma.

Fleiri fréttir síðar !
HH & HKH.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 20:31:53 / hannakar

Nýjar myndir.

Go´ aften.
Eins og elskuleg eiginkona mín minntist á í síðasta bloggi lofaði ég að setja inn myndir um helgina. Nú er hún senn á enda og ekki annað hægt en að klára málið. Þetta snýst um albúm nr. 46 og eru myndir allt frá miðjum mars og fram í maí. 
    Eins og flestir vita eru þær mæðgur á Íslandi og höfum við feðginin haft það notalegt um helgina og reynt að brasa ýmislegt saman, milli þess að hafa verið í góðu yfirlæti hjá snillingunum í Snerlevej, þeim Elísabetu, Herði og dætrum..... (hva´ erí matinn á morgun :d)

Fleiri fréttir síðar !!
Feðginin.

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 19:51:06 / hannakar

Meiri laun, sami haus og margt annað.

Aha ég veit, alger bloggleti á þessum bæ...en við bætum úr því hér með.

Það ætti nú að vera af nógu að taka, en gleymskan er á háu stigi, ég get því miður ekki kennt brjóstaþokunni um, þar sem ég er hætt með Evu á brjósti...en hey það er nú bara rétt rúm vika síðan þannig að ég hlýt að vera með örlitla þoku enn.:$

Annars er allt bara fínt að frétta héðan, eða svona fyrir utan verkföll hjá leikskólakennurum.  Um daginn var 3ja vikna verkfall hjá aðstoðarfólki á leikskólunum og þá var bara alger neyðarpössun  og því var Hildur Heba bara heima á meðan.  Og nú voru leikskólakennarnir að byrja í verkfalli sl. mánudag og Hildur því aftur heima.  Það er kannski lán í óláni að ég sé heimavinnandi á meðan á þessu stendur, en reyndar kemur þetta sér frekar illa þar sem ég og Eva Hrund erum að fara til Íslands á föstudaginn kemur, en Hemmi, Hanna og Hildur verða hér í Hrossanesi, og Hemmi í skóla með enga pössun fyrir Hildi. En jú jú við erum búin að redda Hildi, þar sem ofurkonurnar þær Villý og Elísabet ætla að redda okkur þessar elskur.  Hanna Karin verður að sjálfsögðu bara í sínum skóla, en reyndar engri skólagæslu útaf þessum verkföllum, en þetta reddast allt saman.

Talandi um Hönnu Karin, þá vorum við í foreldraviðtali fyrir nokkrum vikum síðan, og váááá hvað við vorum ánægð með hana Hönnu okkar. Hún fékk bara hrós frá kennurunum, dugleg stelpa, kurteis og hlýðin.  Vill stundum reyna stjórna, en þannig hefur hún nú svosem alltaf verið.:haha:  Kennararnir sögðu líka að hún væri mjög fljót að leysa öll verkefnin sín, væri góð í lestri og skrift.   Já þetta er alveg meiriháttar, og svo er hún í íslenskukennslu líka 2x í viku, og æfir sig þar í lestri og skrift, og þar er bara sama sagan, gengur rosa vel.  Ekki slæmt að vera einungis 6 ára, með tvö tungumál, alveg læs á dönsku og íslensku...:):)

Hildur Heba er bara alltaf sama fígúran, þvílíkur karakter sem hún er, og já gullkornin hjá henni stundum.. T.d. um daginn við matarborðið fór hún allt í einu að tala um að þegar hún yrði stærri þá fengi hún ekki nýjan haus, hún yrði bara með sinn haus áfram.   Svo var hún að ræða við pabba sinn um ástæðuna fyrir fríinu á leikskólanum, og hún segir að fólkið vilji fá meiri laun, og Hemmi spyr hana þá hvort hún viti hvað orðið laun þýði, en nei nei hún veit það ekki, og þrátt fyrir útskýringar Hemma um að meiri laun þýði meiri peningar þá þrætti hún fyrir það og sagði “nei pabbi, þau vilja bara meiri laun, ekki meiri peninga”...:lol: 

Eva Hrund er bara hress núna, hún er annars búin að vera frekar viðkvæm í eyrunum sínum. Fékk eyrnabólgu í þriðja sinn um daginn, og svo í kjölfarið fékk hún penisillin ofnæmi.. og æji greyið var bara öll útsteypt í rauðum flekkjum.  En semsagt hún er bara hin hressasta núna, er aðeins að færa sig upp á skaftið hér á gólfinu, en nei nei hún er ekkert að flýta sér að læra að skríða og svona, en þetta kemur mjög fljótlega..og hér ríkir líka enn algert tannleysi, sem reynist núna stundum erfitt þegar hún er að reyna tyggja matinn sinn.:d

Af okkur hjónakornunum er lika allt gott að frétta, Hemmi á fullu í skólanum, situr einmitt núna við stofuborðið og er að læra, á meðan ég sit í sófanum að blogga...þetta getur nú verið svolítið fyndið þegar við erum farin að ræða saman á msn, þegar það eru einungis nokkrir sentimetrar á milli okkar.8|.geri aðrir betur..

Við höfum nú brallað ýmislegt líka undanfarið, farið í kaffi til vina okkar, fengi vini okkar í kaffi, og já svo á laugardaginn sl. skelltum við okkur á vorhátið hjá íslendingafélaginu, þar sem boðið var upp á leiki af ýmsum gerðum og svo heilgrilluðu svíni...frábær dagur í alla staði, eða fyrir utan köldu goluna sem blés á okkur..usss maður er orðin svo góðu vanur þegar það var 25 stiga hiti en um helgina var BARA 15 gráður.  JJJJJáááááá sumarið er yndislegt.8)

En við látum þetta duga í bili, og vonandi hitti ég ykkur sem flest þarna heima á Íslandinu góða, við Eva Hrund verðum á Ólafsfirði allan tímann, með örugglega nokkrum rúntum inn á Akureyri.

 Heyrðu, já Hemmi lofar því að setja inn nýjar myndir um helgina....


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 21:47:44 / hannakar

Allt að gerast í blogginu

Þetta gengur nú bara ekki . />

Nú er það námsmaðurinn sem tekur af skarið. Verið er að falast eftir fréttum og myndum á vefinn, sama hvort það séu þið þarna heima á Íslandinu eða þeir sem við hittum nánast daglega.
    En allavega er ég mææættuuur.  Mikið er búið að gerast frá síðasta bloggi.
Þá var talað um kuldaskeið en það stóð ekki lengi. Í dag var minn bara þrífa fjölskyldubílinn og slá garðinn í 19 gráðum og sól. Virkilega skemmtilegt bara. 
Svo var minnst á félaga okkar hann Alex og fjölsk. Við eigum greinilega ekki að hittast!! Tveim vikum eftir fæðingu hans, ætluðum við að gera tilraun að hittast, en ekki gekk það sem skyldi. Litli gúbbinn var lagður inná barnadeild niður í Kolding med svæsinn RS vírus og þurfti að dvelja þar í rúma viku í súrefni og alles. Þau komu svo heim í gær, en ekki verður farið að planleggja heimsóknir í bráð. />

Nú er ég að fara í skólann á morgun, ekki verið þar síðan í byrjun febrúar. Praktíkin á verkfræðistofunni lauk á föstudaginn og var þetta gríðarlega góður tími. Unnið að mörgum verkefnum og virkilega fínn vinnustaður. Gamli fór svo með bakkelse frá Freyjunni og vakti mikla lukku. Oft við svona tilefni er tekið einn Gammel dansk eða eitthvað ógeð í dúr. Fór á hjólinu á föstudaginn sem oft áður, en kom við á bensínstöðinni. Rétt fyrir átta um morguninn, með hjálminn á kollinum, bað ég um eina stóra flösku af mjeðinum og setti afgreiðslustúlkan upp frekar fyndinn svip. Greinilega ekki vön að hjólreiðamennirnir komi við á þessum tíma dags eftir snaps !

Svo er bara skóli í 10 vikur og próf 3-4 júlí. Þá er kennslu lokið í þessu námi !! Ha, jú þetta er bara að verða búið !! Einstaklingsverkefni á haustönn og engin kennsla. Bara „konsulent“ timar, þar sem við fáum einhverjar mínútur með hverjum kennara, í hverri viku. />

Af öðrum fjölskyldumeðlimum er allt bara virkilega gott að frétta. Öllum heilsast vel og allar eru þær í sama liðinu og ég, nema stundum finnst Hönnu ég ekki skilja, ef hún er að ræða eitthvað við móður sína. Ég ímynda mér að þetta eigi eftir að aukast eitthvað á næstu misserum :s
Það er verkfall hjá meðhjálpurum (ófaglærðum) á leikskólum oþh og þess vegna hefur Freyja verið heima með Hildi í 2 vikur núna. Hildur hefur bara haft gott af þessu, hún og Eva hafa náð vel saman þar sem bráðum 7 ára „stjórnandinn“ er í skólanum. />

Jaja, best að fara hætta þessu, var að henda inn ansi gömlum myndum í albúm 45. Þær nýustu eru síðan 21. mars. Eins og má sjá, þá er þetta síðan ma og pa voru hér, Valur bróðir og fjölsk, afmæli Hildar Hebu, fimleikasýning hjá systrunum og fleira. />

Nýrri myndir koma inn mjög fljótlega.

/>

Bestu kveðjur. />


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13